Vinnuflæði og tól - GunnarThorunnarson/FORR2GL05DU GitHub Wiki
Unity
Unity student Plan
Nemendur geta fengið aðgang að Unity student plan sem veitir ýmsis fríðindi t.d. frítt premium kennsluefni, aukið gagnamagn í collab (25GB), cloud builds möguleika osfrv.
Skrefin til að fá Unity student Plan:
- þú verður að geta skráð þig inn í skólanetfangið þitt og hafa gert það einu sinni: https://outlook.office.com/mail/
- skráðu þig inn í Github reikninginn þinn og bættu við skólanetfanginu þínu í Profile -> Settings -> Emails. Þetta verðum við að gera af því að Unity notar Github til að sannreyna að þú sért alvöru nemandi.
- farðu á Github Student Developer Pack vefinn og smelltu á "Get Benefits for student" sem veitir þér fullt af fríum hugbúnaði og efni.
- hakaðu þar við student og notaðu skólanetfangið þitt, svaraðu education í textareitnum "How do you plan to use Github" og smelltu á submit.
- farðu í skólanetfangið þitt, þar er að finna invitation tengil, smelltu á hann.
- skráðu þig inn í Unity og náðu núna í Unity student plan https://store.unity.com/academic/unity-student og smelltu á "Sign up" og kláraðu málið.
Unity Team og collaborate
Í Collab í Unity er hægt að bjóða öðrum að sækja og vinna samtímis í projecti. Leiðbeiningar myndband. Sjá einnig í Unity Manual
Forritunarumhverfi og ritlar
- Visual Studio IDE kemur með þegar Unity er sett upp og er með Unity og C# stuðning
- VS Code og Unity stuðningur