Verkefni 1 - Gummy27/Leikjaforritun_1 GitHub Wiki

Verkefni 1

Spurningar:

  1. Hvað er Leikjavél?
    • Leikjavél er forrit sem er sérhannað til að búa til leiki. Þessi forrit gera lífið léttara fyrir forritara þar sem þau hafa yfirleitt innbyggðan physics calculator, graphics handler og margt fleira.
  2. Útskýrðu e. GameLoop í Unity.
    • GameLoop er lykkjan sem keyrir allan tímann sem leikurinn er í gangi. Þessi lykkja tjékkar á því hvort að notandinn sé að gera eitthvað og bregst við í samræmi við það.
  3. Hvað er e. asset? Nefndu algengar tegundir.
    • Assets eru tilbúnir hlutir sem þú getur notað í leiknum þínum. Dæmi um assets eru "models" og "scripts".
  4. Hvað er e. game object og hvernig tengist það e. components í e. Inspector?
    • Game object er hlutur sem hefur ákveðinn skilyrði. Objects geta verið tré, karakterar, óvinir og margt fleira. Upplýsingar um þá s.s. staðsetning, útlit og eiginleikar er hægt að sjá á inspector sem birtist um leið og þú velur hlutinn. Components eru ákveðnir eiginleikar sem þú getur bætt við, breytt og eytt. Þessir eiginleikar geta verið: árekstur við aðra hluti, þyngdarafl og margt fleira.
  5. Hvað er líkt og ólíkt með game object og e. prefab?
    • Game object er yfirheiti yfir hluti sem eru notaðir í leikjarheiminum s.s. spilarinn, tré og óvinir. Prefab er undirheiti og er game object sem er tilbúið svo hægt sé að afrita það og nota aftur. T.d. geturu búið til eitt prefab af tréi og notað aftur og aftur.
  6. Hvað er e. tags og e. layers?
    • Tags eru notuð til að merkja objects. Þau eru notuð til að hópa saman objects svo léttara er að stilla þá. Layers eru einnig notuð til að hópa saman hluti en ólíkt tags eru það ekki alltaf hlutir sem eru líkir í útliti/tilgangi, heldur staðsetningu. Dæmi um layers eru Foreground, background og UI
  7. Útskýrðu stuttlega hlutverk eftirfarandi glugga/svæði í Unity
    • Scene View: "Scene view" er sá gluggi sem þú notar mest. Í honum getur þú séð borðið sem þú ert að hanna og fært hluti til og frá.
    • Game View: Í "Game view" getur þú prófað leikinn þinn í vernduðu umhverfi Unity. Á meðan að leikurinn spilast geturu breytt breytum til að fínstilla leikinn.
    • Project: Í "project" glugganum getur þú séð alla hlutina(objects), borð(scenes) og "scripts" sem þú ert að nota.
    • Hierarchy: "Hierarchy" glugginn sýnir allar möppurnar og hlutina sem eru í forritinu.
    • Inspector: "Inspector" er gluggi sem sýnir allar helstu upplýsingar og stillingar á hlutum. Þar getur þú bætt við svokölluðum "Components" svo að hluturinn hegðar sér á einhverskonar hátt s.s. þyngdarkraftur og árekstur.

Leikur - Kubbaþon

IMAGE ALT TEXT