Verkefni 1 - GudrunGigja/VERKSM_vrk1 GitHub Wiki

Fyrst fórum við upp í framtíðarstofuna og lærðum á inkscape, glowforge og tré útskurðs laser vélina. í inkscape notuðum við box maker extension sem býr til grunn kassa fyrir okkur til að svo bæta við sérþarfir fyrir verkefnið og gerðum við þannig blueprintið fyrir arduino kassan, þann 18. mars.

Í inkscape gerðum við blueprintið í svg skrá og hönnuðum lógó þar, ég notaði form, fill, stroke og texta og svo hópaði(grouped together) ég saman formin sem mynduðu hvern stakan part af arduino kassanam. Ég notaði rétt liti í inkscape sem glowforge gat síðan skilgreint og ég gat stilt hvernig laserin skar hverja línu sem var í mismunandi lit (hraða/speed og kraft/power).

Svo þegar ég var búin að stilla hönnuninni í glowforge og laser prentaranum þá ýtti ég á hnapp á prentaranum ("magic time") og vélin skar út boxið.

Síðan setti ég saman og hann virkaði ekki fullkomlega við fyrstu tilraun, svo ég fór aftur í inkscape og lagaði kassan, tennurnar á einni hlið pössuðu ekki við hinar sem þær áttu að læsast í og mynda 90° horn svo ég hækkaði bara tennurnar og bætti við einn endan og prentaði það aftur og sá kassi virkaði vel og er mjög flottur.

hér sérðu bleikar, bláar og svartar línur, þessir litir skipta máli fyrir útskurðinn á kassanum. Því eina leiðin fyrir glowforge til að þekkja munin á línunum er ef þær eru í mismunandi litum í svg skránni. Ég gerði svörtu og bláu línurnar að skurðarlínum og þessar bleiku eru design línur sem ég gerði þannig að glowforge skeri ekki í gegnum þær, með því að stilla hraðan og kraftinn á lasernum þegar hann sker í línurnar.